Tvöföld hundasýning HRFÍ í ágúst
Hope og Cesar mættu til leiks á tvöfalda hundasýningu HRFÍ 25. og 26. ágúst þar sem þau stóðu sig sérlega vel.
Fyrri daginn fékk Cesar excellent og 1. sæti í ungliðaflokki og Hope fékk excellent og 2. sæti í ungliðaflokki, dómari var Marie Petersen frá Danmörku.
Seinni daginn fékk Cesar aftur excellent og 1. sæti í ungliðaflokki og Hope fékk excellent, meistaraefni, meistarastig, ungliðameistarastig, 1. sæti í ungliðaflokki og besta tík og besti hundur tegundar BOB, BOG 3 og 5-6 sæti sem besti ungliði sýningar, dómari var Sjoerd Jobse frá Svíþjóð.