Hann elskulegur Sebastian okkar er farinn á vit feðra sinna
Fæddur 10, maí 1987, dáinn 17. apríl 2014.
Sebastian var mikill vinur og félagi, einstaklega ljúfur og hvers manns hugljúfi, hann hreinlega heillaði alla sem á vegi hans varð. Hann var líka einstaklega fallegur og já, þrjóskur eins og sannur golden.
Hann var eiginlega mennskur, eða það héldum við nú oftast, fyrstu 9 ár ævi hans var hann eini hundurinn okkar og það var meira komið fram við hann eins og erfðaprins en hund og því ekki skrítið að hann héldi líka að hann væri mennskur. Allir aðrir hundar eru bornir saman við hann Sebastian og ævinlega er sagt: Sebastian gerði ALDREI svona.....það er svo sannarlega erfitt og sennilega ómögulegt að standast þennan samanburð um ókomna tíð.
Þó hér ríki mikil sorg þá er okkur efst í huga mikið þakklæti fyrir að hafa fengið þennan gullmola til okkar. Með honum hófst mikið ævintýri sem mun halda áfram.
Hvíldu í friði kæri vinur!